Hæ hæ.
Þetta er búin að vera meiri dagurinn....
Reyndar byrjaði vitleysan í gærkvöldi...

Við litla fjölskyldan erum búin að vera í mjög góðu jólafríi, og það sem fylgir jólafríum er náttúrulega svefnrugl og rútínuleysi

. Dóttir mín til dæmis er ekki að meika þetta rútínuleysi, og hefur verið að mótmæla þessu veseni mömmunni á hverju kvöldi. Í gær náði það toppnum held ég.
Ég ákvað að vera voðalega sniðug og leigja mér video og ætlaði að hafa voða kósý uppí sófa og glápa á stelpumyndir. En nei dóttir mín var nú ekki sammála því plani..... Hún var á öskrinu í rúma 2 tíma takk fyrir... Ekkert að henni, hún vildi bara vera hjá mömmu sinni í mömmukúri... Mér tókst á þeim tíma að horfa á með herkjum 40 mín af myndinni

. En hún gafst upp blessunin eftir MIKLA þrjósku..
En í morgun vaknaði ég við börnin tvö voða kósý, nema að strákrassgatið var svo hrillilega hress að ég átti ekki til orð

. En Sigrún vildi endilega vera með ömmustrákinn sinn í dag, þannig að hún kom síðan um hádegið og náði í gorminn.
Við tók að koma stelpurassgatinu í vagnin og svo að taka til..
En nei ég var svo löt og þreytt eitthvað að ég nennti ekki að gera neitt.. Úff ömurlegt að vera í þeim gírnum.. Heiða vinkona kom svo með Hrafnkel og Tönju, og ætlaði ég að fara niður í geymslu að ná í strákaföt sem við erum að fara að gefa, en viti menn, þegar ég fór niður var ALLT á floti

.. Ég fór beina leið upp, bankaði hjá einum nágranna mínum og við tók heljarinnar vinna. Slökkviliði, pípari, rafvirkji og ég veit ekki hvað og hvað... Allar geymslur, allt.
Ég er svo heppin að eiga góðan stjúppabba sem kom og hjálpaði mér með mína geymslu eftir að öll vinnan frammi var búinn. Það þurfti að taka allt út, þurrka uppaf gólfum og hvað eina..
En þarna kom sko eitt í ljós

. Ég raðaði svo ömurlega illa inní geymslu þegar ég flutti og eftir að ég flutti að geymslan var alveg troðin, en viti menn, pappakassar tómir og dót sem mátti alveg blotna lá á gólfinu

híhíhí, og allt það sem ég hefði verið mjög leið á að missa var uppá því

. Sko.. Stundum borgar það sig að henda bara inní geymslu

.
Nei en annars, þetta var alveg rosalega leiðinlegt. Held að margir hafa verið að tapa slatta af drasli, það var ein með fullan kassa af myndaalbúmum sem skemmdist

, finnst það alveg ömurlegt.
En já svona er þetta víst.

Ætla ég hætti ekki þessu blaðri..
Ætla að hafa tilraun 2 í kósýkvöldinu með sjálfri mér

.
See ya